Bakland Grænvangs
Viltu vera með?
Bakland Grænvangs samanstendur af íslenskum stjórnvöldum og leiðtogum atvinnulífsins í loftslagsmálum. Saman leitumst við eftir þverfaglegu lausnamiðuðu samstarfi, virkjum sköpunargleðina hjá hvort öðru - enda erum við öflugri saman - og styrkjum hvort annað í því að ná árangri í loftslagsmálum.
Félagar í baklandi Grænvangs eru leiðtogar í loftslagsmálum. Þau styðja við vegferð Íslands í loftslagsmálum, eru fyrirmyndir og sýna fram á hvernig íslenskt hugvit og lausnir geta stutt við loftslagsvegferðina á heimsvísu.
Áhugasöm um að gerast félagar í Grænvangi eru hvött til að hafa samband við starfsmenn Grænvangs