Hoppa yfir valmynd

Flottur hópur þátttakenda í málstofu Grænvangs um norræna samstarfsmódelið

Árangursrík þátttaka atvinnulífs á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna COP28

  • Átján íslensk fyrirtæki, auk fulltrúa íslenskra stjórnvalda, tóku þátt á COP28 – loftslagsráðstefnu sem markaði tímamót.
  • Ísland tekur þátt í kolefnisáskoruninni og íslenskar lausnir halda áfram að vekja athygli og skila góðum árangri.
  • Þátttakan á COP28 skilar dýrmætri þekkingu og tengslum heim enda ein stærsta ráðstefna heims um loftslagsmál og grænar lausnir.

Öflugur hópur átján fyrirtækja úr íslensku atvinnulífi tók þátt á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP28) sem fram fór í Dubai dagana 30. nóvember til 12. desember. Grænvangur leiddi íslensku viðskiptasendinefndina en þátttaka atvinnulífsins var skipulögð í nánu samstarfi við forsætisráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Þingið markaði ákveðin tímamót en þar fór fram fyrsta stöðutaka aðildarríkja Loftslagssamningsins eftir að Parísarsamkomulagið var undirritað 2015. Ákall forseta þingsins og leiðtoga heimsins um aðgerðir var skýrt: Gera þarf meira og hraðar, eigi markmiðið um að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráður að nást. 

Við erum hæstánægð með samstarf atvinnulífs og stjórnvalda á þessum mikilvæga vettvangi og framlag íslensku sendinefndarinnar á COP28. Eftir margar afkastamiklar málstofur, markvissa fundi og líflegar umræður er ljóst að áhuginn á íslenskum lausnum fer sífellt vaxandi. Á ráðstefnunni felast líka mikil tækifæri í loftslagsaðgerðum atvinnugreina á Íslandi, meðal annars þegar kemur að því að auka alþjóðlegt samstarf og samhæfa aðgerðir, þvert á landamæri og ólík svið,“ segir Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs.

Þátttakan á þinginu styður við orkuskiptin á Íslandi og víðar

Á þinginu var lögð áhersla á að á heimsvísu þurfi að þrefalda endurnýjanlega orkuframleiðslu og bæta orkunýtni tvöfalt fram til ársins 2030. Þessi áhersla er í samræmi við það sem Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) og IRENA – alþjóðleg stofnun um endurnýjanlega orku (International Renewable Energy Agency) hafa kynnt á undanförnum mánuðum en 130 þjóðir hafa nú þegar skrifað undir stuðningsyfirlýsingu í þeim efnum og er Ísland eitt þeirra ríkja.

„Þriðju orkuskiptin á Íslandi fela það í sér að skipta þarf út öllu jarðefnaeldsneyti sem við notum  fyrir endurnýjanlega orkugjafa. Það er risavaxið verkefni og stór umbreyting sem þarfnast nýrrar nálgunar og krefst víðtæks samstarfs fyrirtækja og stjórnvalda um allan heim. Á þinginu í Dúbaí áttum við fjölda funda með fyrirtækjum sem standa framarlega í endurnýjanlegri orkuvinnslu og orkunýtingu. Þátttakan veitti okkur betri innsýn í hvernig hægt er að taka næstu raunhæfu skref í orkuskiptum á Íslandi, hvernig við munum knýja flutninga bæði á landi og á hafi,“ segir Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun.

Þá kom skýrt fram á þinginu að áhugi þjóða á beinni nýtingu jarðvarma sem mikilvægum lið í orkuskiptum fer stigvaxandi.

„Hitun og kæling samsvarar yfir helming orkuskiptaþarfar veraldar og bein nýting jarðhita, líkt og á Íslandi, er áhrifaríkur valkostur fyrir margar þjóðir. Við hjá Arctic Green spörum yfir 5 milljónir tonna af koltvísýringi í verkefnum okkar um allan heim á þessu ári og stefnum miklu hærra með fjárfestingum á næstu árum. Orkuskipti í hitun og kælingu eru stærsta áskorunin í baráttunni við loftslagsvána,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Arctic Green Energy.

Norræna módelið skilar áþreifanlegum árangri

Á COP28 gafst einstakt tækifæri til að treysta bönd og mynda ný tengsl en loftslagsvandinn er sameiginlegt verkefni okkar allra þar sem rödd Íslands skiptir sannarlega máli. Því stóðu Grænvangur og íslenska viðskiptasendinefndin fyrir þremur málstofum auk þess sem fulltrúar íslensks atvinnulífsins tóku þátt í fjölda annarra málstofa og samtala sem þar fóru fram. Þar má nefna málstofu um norræna samstarfsmódelið, sem haldin var í samstarfi við forsætisráðuneytið, umhverfisráðuneyti Finnlands, finnsku iðnaðarsamtökin EK og dönsku samtökin State of Green. Þar var fjallað um samstarf atvinnulífsins og hins opinbera á Norðurlöndunum og skilaboðin voru skýr: Samstarf hins opinbera og einkaaðila flýtir ekki bara fyrir loftslagsaðgerðum heldur skilar áþreifanlegum árangri sem gagnast samfélaginu í heild. Nauðsynlegt er að tryggja aðkomu allra við mótun loftslagsaðgerða og norræna samstarfsmódelið getur nýst öðrum þjóðum.

Íslenska sendinefndin beindi einnig sjónum að mikilvægi fjölbreytileika og jafnréttis sem lykilforsendu sjálfbærra og réttlátra umskipta en á því sviði getur Ísland verið öflug fyrirmynd. Loftslagsbreytingar hafa áhrif á einstaklinga alls staðar, óháð kyni, bakgrunni eða öðrum breytum. Virkja verður alla tiltæka styrkleika og getu til að takast sameiginlega á við loftslagsáskorunina og orkuskipti veraldar.

„Að skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir græna orku er stórt og mikið verkefni sem þjóðir heimsins verða að ná saman um. Í því, líkt og öðrum stórum verkefnum, er mikilvægt að við notum alla þá þekkingu og reynslu sem við búum yfir og þar leikur jafnrétti auðvitað lykilhlutverk. Saman eru við sterkari og þess vegna verðum við að takast á við loftslagsvána saman,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Jákvæð skref og áframhaldandi góður árangur íslenskra fyrirtækja

Á þinginu staðfesti Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þátttöku Íslands í alþjóðlegu kolefnisáskoruninni (e. Carbon Management Challenge, CMC) í samstarfi við Bandaríkin. Ísland stendur framarlega á sviði kolefnisföngunar, förgunar og nýtingar enda hafa fjölmörg fyrirtæki hérlendis lagt allt kapp á að þróa nýjar lausnir á þessu sviði undanfarin ár. Þar má meðal annars nefna Carbfix og Carbon Recyling International, sem áttu fulltrúa á ráðstefnunni.

„Aðild Íslands að kolefnisáskoruninni er mjög jákvætt skref. Það er óumdeilt að til að ná loftslagsmarkmiðum er nauðsynlegt að fanga og binda kolefni í mjög miklu magni, ekki síst losun sem stafar frá iðnaðarferlum og ekki er hægt að útrýma með orkuskiptum eða öðrum leiðum. Aðferð Carbfix til öruggrar og varanlegrar kolefnisbindingar í bergi hefur vakið heimsathygli og við teljum að þetta alþjóðlega átaksverkefni sé góð leið til að stuðla að frekari innleiðingu okkar lausnar, sem og annarra ábyrgra lausna sem nauðsynlegt er að beita í baráttunni við loftslagsvandann,“ segir Edda Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix, sem var viðstödd undirritunina í Dúbai.

Þá tilkynnti íslenska fyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) um undirritun samnings við þýska eldsneytisframeiðandann P1 fuels, sem hyggst nota tækni CRI í framleiðslu á rafeldsneyti fyrir akstursíþróttir. Með tækninni verði hægt að framleiða vistvænt metanól úr koltvísýringi og vetni, en P1 mun nýta það til að framleiða bensín fyrir hefðbundnar bílvélar.

„Við erum ákaflega stolt af samstarfi okkar við P1 þar sem græna metanóltæknin sem CRI hefur þróað mun styðja við orkuskiptin með framleiðslu á kolefnishlutlausu eldsneyti. Það er ánægjulegt að geta látið verkin tala og nýtt okkar tækni til að ná markmiðum í loftslagsmálum og orkuskiptum,“ segir Björk Kristjánsdóttir, forstjóri Carbon Recycling International.

Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, er að vonum ánægð með virka þátttöku og sýnileika íslensku sendinefndarinnar á COP28: „Sá mikilvægi tímamótaáfangi sem samninganefndir aðildarríkja COP28 náðu á þinginu mun styðja enn frekar við okkar starf. Þátttaka íslensku viðskiptasendinefndarinnar á loftslagsþinginu var mikilvægur liður í að styrkja framlag Íslands til loftslagsmála en ekki síður í að auka þekkingu og mynda ný tengsl, sem munu styðja við áframhaldandi loftslagsaðgerðir til framtíðar hér heima. Við sýndum enn einu sinni að íslenskt atvinnulíf og stjórnvöld geta haft áhrif og að með samstöðu og lausnamiðari nálgun er raunverulega hægt að hreyfa við hlutunum.“

Aðrar fréttir

card thumbnail
Átta fyrirtæki héldu framlagi Íslands á lofti í Bakú

Átta fyrirtæki skipuðu viðskiptasendinefnd Íslands á COP29 sem fram fór í Baku í Aserbaíjan dag...

27. nóvember 2024
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs.
Ný nálgun á samstarf atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum með þjónustusamningi við Grænvang

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði á Umhverfisþingi í...

5. nóvember 2024
card thumbnail
Viljayfirlýsing um aukið samstarf milli Grænvangs og State of Green

Grænvangur og State of Green undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aukið samstarf þeirra á mill...

10. október 2024
card thumbnail
Forseti Íslands verður verndari Grænvangs

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur þekkst boð um að verða verndari Grænvangs.

9. október 2024
card thumbnail
Umsóknarfrestur um þátttöku í viðskiptasendinefnd Íslands á COP29 rennur út 31. maí nk.

Nú styttist í að umsóknarfrestur fyrir umsóknir um þátttöku í viðskiptasendinefnd á COP29 renni...

22. maí 2024
card thumbnail
Kynningarfundur um viðskiptasendinefnd Íslands á COP29

Grænvangur býður á opinn kynningarfund um viðskiptasendinefnd Íslands á COP29 þann 7.maí kl. 8:...

6. maí 2024
card thumbnail
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í viðskiptasendinefnd Íslands á COP29

Fulltrúar úr íslensku atvinnulífi hafa undanfarin ár sótt ráðstefnuna með það að markmiði að sæ...

23. apríl 2024
card thumbnail
Ísland aðili að alþjóðlegu kolefnisáskoruninni

Í nýliðinni viku á COP28 aðilarríkjaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna staðfesti, Guðlaugur Þór Þórða...

11. desember 2023
card thumbnail
Íslenskar lausnir í brennidepli í erlendum fjölmiðlum  

Á hverju ári stendur Grænvangur, undir merkjum Green by Iceland, í samstarfi við Íslandsstofu f...

22. nóvember 2023
card thumbnail
Tvær vikur í COP28

Í gær, 15. nóvember 2023 bauð Grænvangur, í samstarfi við Umhverfis, Orku og Loftslagsráðuneyti...

16. nóvember 2023
card thumbnail
Sextán íslensk fyrirtæki sækja Lofslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2023

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP28, fer fram í arabísku furstaveldunum 30. nóvember t...

13. nóvember 2023
card thumbnail
Eftirspurn eftir grænni orku fer sívaxandi í heiminum  

Þróunin er ör og því er ljóst að eftirspurn eftir grænni orku mun aukast umtalsvert á næstu áru...

13. nóvember 2023
card thumbnail
Íslenskt atvinnulíf á Lofslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2023

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP28, fer fram í arabísku furstaveldunum 30. nóvember t...

9. júní 2023
card thumbnail
Fræðsluferð til Noregs

Í lok apríl fór Grænvangur í velheppnaða fræðsluferð til Noregs

5. maí 2023
card thumbnail
Ársfundur Grænvangs 2023 - Streymi

Upptaka af ársfundi Grænvangs sem fór fram 21. mars 2023

24. mars 2023
card thumbnail
Vettvangs- og fræðsluferð til Noregs

Grænvangur stefnir á vettvangs- og fræðsluferð til Noregs til að fræðast um hagnýtingu vinds da...

9. mars 2023
card thumbnail
Dagskrá ársfundar Grænvangs 2023

Ísland 2040 - Ný hugsun í breyttum heimi. Ársfundur Grænvangs 2023 fer fram í Grósku 21. mars f...

6. mars 2023
card thumbnail
Ísland 2040 - Ný hugsun í breyttum heimi

Ársfundur Grænvangs 2023 fer fram í Grósku 21. mars frá klukkan 13 til 15 - taktu daginn frá!

21. febrúar 2023
card thumbnail
Sandra Rán nýr liðsmaður Grænvangs

Nýr verkefnastjóri innlends samstarfs hefur störf í byrjun árs 2023. Við fögnum öflugum liðsman...

20. desember 2022
card thumbnail
Með vind í seglum til Danmerkur

Alls tóku 37 aðilar frá Íslandi þátt í viðburði á vegum State of Green í Danmörku þar sem vindo...

14. desember 2022
card thumbnail
Opnun sendiráðs í Póllandi

Forstöðumaður Grænvangs var viðstaddur opnun sendiráðs Íslands í Varsjá ásamt nokkrum aðilum hé...

1. desember 2022
card thumbnail
Ísland á loftslagsráðstefnunni COP27

Íslensk nýsköpun á sviði loftslagsmála var áberandi í hópi íslensku fyrirtækjanna sem sóttu COP...

22. nóvember 2022
card thumbnail
Sendinefnd til Slóvakíu

Grænvangur sótti á dögunum Slóvakíu heim ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson og öflugr...

27. október 2022
card thumbnail
Jarðvarmi aðalmálið í haust

Mikill áhugi var á þekkingu Íslendinga, sérstaklega á sviði húshitunar á European Geothermal Co...

24. október 2022
card thumbnail
Grænar lausnir í brennidepli á loftslagsráðstefnu í Washington

Green by Iceland og sendiráð Íslands í Bandaríkjunum stóðu fyrir ráðstefnunni Our Climate Futur...

29. september 2022
card thumbnail
Starfshópur vindorku kallar eftir sjónarmiðum fyrir 30. september

Hvatt er til þess að sem flestir setji fram skoðanir sínar um nýtingu vindorku og tengd atriði.

21. september 2022
card thumbnail
Verkefnastjóri fyrir innlent markaðsstarf Grænvangs

Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að leiða verkefni um innlent samstarf á vegum Grænvang...

16. september 2022
card thumbnail
Grænvangur býður Nótt velkomna til starfa

Nótt Thorberg hefur tekið við sem forstöðumaður Grænvangs

1. september 2022
card thumbnail
Kynningarfundur um nýsköpunarstyrki EIC

Þann 19. maí nk. stendur Rannís, ásamt EEN, SSP, SI, Evris og Grænvangi, fyrir kynningarfundi í...

18. maí 2022
card thumbnail
Loftslagsmót 2022

Loftlagsmótið, vettvangur fyrir fyrirtæki og aðra aðila í nýsköpun, fer fram þann 4.maí næstkom...

22. apríl 2022
card thumbnail
Samhent átak lykillinn að árangri

Á ársfundi Grænvangs ræddu stjórnvöld og atvinnulíf samvinnu á sviði loftslagsmála

12. apríl 2022
card thumbnail
Ársskýrsla Grænvangs 2021

Ársskýrsla Grænvangs fyrir árið 2021 er nú aðgengileg hér á vefnum.

5. apríl 2022
card thumbnail
Ársfundur Grænvangs

Samstíga á árangursríkri loftslagsvegferð - þáttur atvinnulífsins í orkuskiptum Íslands

24. mars 2022
card thumbnail
Ársfundur Grænvangs - taktu daginn frá!

Þér er boðið á ársfund Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál...

8. mars 2022
card thumbnail
Carbon Recycling International taka þátt í öflugu starfi Grænvangs

Carbon Recycling International (CRI) hefur gengið í lið bakhjarla Grænvangs, samstarfsvettvangs...

18. febrúar 2022
card thumbnail
Af góðum hug koma góð verk

Árið 2021 var viðburðarríkt á sviði loftslagsmála. Víðast hvar í samfélaginu mátti greina aukna...

18. janúar 2022
card thumbnail
Hagar bætast við bakland Grænvangs

Hagar hafa gerst bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftsla...

20. desember 2021
card thumbnail
Kapphlaup að kolefnishlutleysi

Í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow 2021 býður Breska sendiráðið á Ísl...

20. október 2021
card thumbnail
Krón­prins Dana kynnti sér Græna framtíð

Friðrik krónpins Dana heimsótti í gær margmiðlunarsýninguna Græna framtíð.

14. október 2021
card thumbnail
Græn framtíð lítur dagsins ljós

Samkomulag um fjármögnun Grænvangs til næstu fimm ára

21. september 2021
card thumbnail
Hringrásarhagkerfið – hlutverk okkar í að minnka sóun

Hvernig er hægt að stuðla að ábyrgri framleiðslu og neyslu þegar kemur að matvælum, fatnaði, by...

3. september 2021
card thumbnail
Engar samgöngur eftir áratug?

Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem kom út í dag, er afdráttarlaus.

9. ágúst 2021
card thumbnail
Loftslagsvegvísir og umhverfisvænt kvótakerfi

Grænvangur, ásamt sjö atvinnugreinafélögum kynnti nýlega Loftslagsvegvísi atvinnulífsins.

13. júlí 2021
card thumbnail
Loftslagsvegvísir atvinnulífsins - samvinna, orkuskipti og nýsköpun

Nýsköpun og fjárfesting á öllum sviðum atvinnulífsins eru mikilvægar forsendur árangurs í lofts...

28. júní 2021
card thumbnail
Loftslagsvegvísir atvinnulífsins

Í dag var nýr Loftslagsvegvísir atvinnulífsins gefinn út og kynntur í Húsi atvinnulífsins. 

23. júní 2021
card thumbnail
Loftslagsvegvísir atvinnulífsins - bein útsending

Loftslagsvegvísir atvinnulífsins verður formlega kynntur miðvikudaginn 23.júní kl.15:00 í beinu...

22. júní 2021
card thumbnail
Útflutningur grænna lausna

Eitt stærsta framlag Íslendinga til loftslagsmála er útflutningur hugvits og grænna lausna.

11. júní 2021
card thumbnail
Plastið í atvinnulífinu - öll erindi eru nú aðgengileg á vefnum

Rafrænn viðburður um ábyrga plastnotkun í íslensku atvinnulífi fór fram 26.maí.

31. maí 2021
card thumbnail
Plastið í atvinnulífinu - lærum hvert af öðru og öxlum ábyrgð
17. maí 2021
card thumbnail
Hver verður loftslagsarfleifð okkar kynslóðar?

Íslenskt samfélag hefur sett sér það markmið að verða kolefnishlutlaust árið 2040 og jarðefnael...

7. maí 2021
card thumbnail
Vel heppnað Loftslagsmót 2021

Loftslagsmót fór fram með rafrænum hætti miðvikudaginn 21.apríl og tókst gríðarlega vel til.

26. apríl 2021
card thumbnail
Loftslagsmót – stefnumót um lausnir framtíðarinnar

Grænvangur, RANNÍS og EEN standa  nú fyrir Loftslagsmóti,  í samstarfi við Festu og Atvinnuvega...

16. apríl 2021
card thumbnail
Bill Gates, kófið og loftslagið

„Ísland er í kjörstöðu til að vera í forystu þeirra sem stefna í þá átt sem Bill Gates fjallar...

1. apríl 2021
card thumbnail
Framlag Íslands til Loftslagsvænni framtíðar

Ársfundur Grænvangs 2021 var haldinn 23. mars

24. mars 2021
card thumbnail
Taktu þátt í rafrænu loftslagsmóti 2021

Loftslagsmótið haldið í annað sinn

22. mars 2021
card thumbnail
Er jarðefnaeldsneytislaust Ísland prinsípmál eða pípudraumur?

Á öllum þessum sviðum þarf endurnýjanlega orku, svo um raunveruleg orkuskipti verði að ræða. Ís...

18. mars 2021
card thumbnail
Rafrænn viðskiptafundur Íslands og Tékklands á sviði nýsköpunar og grænna lausna

Íslenskar og tékkneskar tækninýjungar á sviði umhverfis- og loftslagsmála voru kynntar á rafræn...

18. mars 2021
card thumbnail
Íslenskar grænar lausnir kynntar í Evrópu

Íslenskar grænar lausnir voru í forgrunni á vefviðburði sem var haldinn í samstarfi milli sendi...

10. mars 2021
card thumbnail
Vetni – til hvers?

Ísland gæti orðið meðal fyrstu landa heims til að verða alfarið óháð jarðefnaeldsneyti.

14. janúar 2021
card thumbnail
Ís­land leiðandi í græn­um lausn­um með Green by Ice­land

Grænvangur setti enska vefsíðu sína í loftið með rafrænum kynningarviðburði

18. desember 2020
card thumbnail
Íslenskar grænar lausnir og tækifærin erlendis

Eitt stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum er útflutningur sérfræðiþekkingar á sviði endurný...

16. desember 2020
card thumbnail
Framlag Íslands í loftlagsmálum

Stærstu áskoranir þjóða heims í loftslagsmálum snúa að orkuskiptum.

9. desember 2020