Loftslagsmót 2022
Loftslagsmót 2022
Stefnumót fyrirtækja um nýsköpun og lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála
Taktu þátt í Loftslagsmóti þann 4.maí 2022 í Gullteig á Grand Hótel kl. 08:30-12:30.
Loftslagsmót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örfundum. Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir/bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við umhverfisvænni rekstur.
Markmið viðburðarins eru að:
- Hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær lausnir sem eru í boði.
- Bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
- Stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála.
Allir aðilar sem skrá sig geta í framhaldinu óskað eftir örfundum með öðrum þátttakendum á Loftslagsmótinu.
Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir hjá Grænvangi (birta@green.is) og Katrín Jónsdóttir hjá RANNÍS (katrin.jonsdottir@rannis.is).
Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, Rannís og EEN í samstarfi við Festu og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Loftslagsmót 2022 - Dagskrá