Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur þekkst boð um að verða verndari Grænvangs, sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Halla greindi frá þessu í heimsókn hennar og Friðriks X, Danakonungs til State of Green og Dansk Industri fyrr í dag.
Heimsóknin var hluti af dagskrá viðskiptasendinefndar Íslands, sem fylgir forsetanum í hennar fyrstu opinberu heimsókn til Kaupmannahafnar sem stendur nú yfir. Í viðskiptasendinefndinni eru fulltrúar um 50 íslenskra fyrirtækja sem tóku þátt í viðskiptaþingi með fulltrúum danskra fyrirtækja þar sem meðal annars var rætt um orkumál, grænar lausnir og samstarf þjóðanna.
Grænvangur á sér skýra fyrirmynd í hinu danska State of Green en þess má geta að Friðrik X, Danakonungur, er verndar State of Green og hefur verið frá stofnun þess vettvangs árið 2008.
„Ég hef áður sagt að farsælast sé að kalla ólíka saman, spyrja spurninga og hlusta á fjölbreytt sjónarmið. Það er keppikefli allra þjóða að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráður. Það er stórt verkefni sem verður ekki leyst nema að við höfum hugrekki til að fara nýjar leiðir, tala saman og vinna saman þvert á greinar, þjóðir og kynslóðir. Það er mér sérstakt ánægjuefni að verða verndari Grænvangs, sem hefur það hlutverk að leiða saman stjórnvöld og atvinnulíf í að greina og skilja vandann og sóknarfærin og virkja kraftinn í samstarfinu,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.
„Við erum sérstaklega stolt af því að forseti Íslands hafi tekið að sér að verða verndari Grænvangs. Grænvangur hefur fest sig í sessi sem hreyfiafl í grænni iðnbyltingu og framundan eru spennandi verkefni sem við hlökkum til að vinna með forseta Íslands. Forsetinn er í einstakri aðstöðu til að leiða ólíka aðila saman til að vinna að metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum, en forsenda þess að ná árangri er að taka höndum saman. Við trúum því að forsetinn geti verið hreyfiafl í því samstarfi,“ segir Sigurður Hannesson, formaður stjórnar Grænvangs.