Ný hvítbók um beina nýtingu jarðvarma gefin út
Ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita var kynnt í útgáfuhófi í Elliðaárstöð Orkuveitunnar í gær. Útgáfan er afrakstur samstarfs fjölmargra aðila í baklandi Grænvangs sem hafa sameinast um að varpa ljósi á hvernig jarðhiti getur stutt við orkuskipti, nýsköpun og sjálfbæra verðmætasköpun, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.
Útgáfuhófið markar upphaf alþjóðlegrar kynningar á hvítbókinni, sem verður kynnt á World Geothermal Congress dagana 8. til 11. júní næstkomandi undir merkjum Green by Iceland, í samstarfi við Íslandsstofu. Fulltrúar 19 fyrirtækja íslenskra fyrirtækja munu sækja ráðstefnuna og kynna þar íslenska þekkingu, reynslu og lausnir á sviði jarðhita.
Bein nýting jarðhita gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og hefur jafnframt verulegt alþjóðlegt gildi, ekki síst í ljósi aukinnar áherslu á orkuöryggi og minni notkun jarðefnaeldsneytis. Markmið hvítbókarinnar er að auka skilning á hagnýtum lausnum, miðla íslenskri þekkingu og reynslu og sýna fram á hvernig jarðvarmi getur orðið lykilþáttur í sjálfbærum orkuskiptum um allan heim.
„Jarðhitinn hefur styrkt orkuöryggi Íslands, orkusjálfstæði og orkufullveldi. Þegar heimurinn hefur staðið frammi fyrir sveiflum á eldsneytismörkuðum, óvissu í alþjóðamálum og aukinni spennu, höfum við getað byggt á innlendri, endurnýjanlegri orku. Það er ekki sjálfgefið heldur afrakstur af framsýni fyrri kynslóða. Hvítbókin dregur fram að með skýrri stefnu, sterkum stofnunum, öflugri verkþekkingu og markvissu átaki má nýta jarðhita til að skapa stöðugt, hagkvæmt og kolefnislítið hitakerfi í fjölbreyttum aðstæðum. Það er mikilvæg skilaboð til ríkja, sveitarfélaga, fjárfesta og stofnana sem leita raunhæfra lausna í orkuskiptum og loftslagsmálum.“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, við tilefnið.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður stjórnar Grænvangs, tóku einnig til máls við tilefnið. Þeir lögðu áherslu á mikilvægi þess að Íslendingar miðli þekkingu sinni og reynslu af nýtingu jarðhita til umheimsins.




























































