Ísland hefur vísað Evrópu veginn þegar kemur að nýtingu jarðvarma og getur Evrópusambandið lært margt af Íslendingum. Þetta kom fram í ávarpi Dan Jørgensen, framkvæmdastjóra orku- og húsnæðismála í framkvæmdastjórn ESB á viðburðinum „Our Climate Future“ sem fór fram í Brussel í vikunni.
Þar komu saman rúmlega 150 sérfræðingar, stjórnendur og stefnumótunaraðilar en viðburðurinn var haldinn undir yfirskriftinni „Jarðvarmi sem drifkraftur fyrir samkeppnishæfni, kolefnishlutleysi og orkuöryggi Evrópu“ (e. Geothermal Energy as a Driver for European Competitiveness, Decarbonisation and Energy Security).
Í ávarpi Jørgensen kom m.a. fram að jarðvarmi væri vannýttur orkukostur í Evrópu en að Ísland hefði vísað Evrópu veginn þegar kemur að nýtingu hans. Hann lagði áherslu á að Evrópusambandið hefði margt að læra af Íslendingum. “Jarðvarmi getur verið hornsteinn fyrir Evrópu framtíðarinnar þegar það kemur að hreinni orku,” sagði Jørgensen og benti á að jarðvarmi væri staðbundin orka sem áföll heimsins hafa engin áhrif á.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpaði einnig fundinn og sagði að það væri sama hvort að þær ógnanir sem þjóðir stæðu frammi fyrir væru náttúruvá eða ófriður, alltaf væri nauðsynlegt að tryggja orkuöryggi með stöðugum, staðbundnum og endurnýjanlegum orkukostum eins og jarðvarma. Hann áréttaði að Evrópa stæði frammi fyrir miklu tækifæri í nýtingu jarðvarma til húshitunar.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður Grænvangs flutti lokaorð þar sem hann sagði að dagurinn hefði ekki bara verið um stöðu jarðvarma á Íslandi heldur ekki síður um framtíð jarðvarma í Evrópu.
„Ísland er tilbúið til samstarfs – ekki bara sem fyrirmynd, heldur sem samstarfsaðili í vegferð Evrópu að hreinni orku. Jarðvarmabyltingin snýst ekki aðeins um tækni, hún snýst um seiglu, sjáfbærni og sameiginlega velferð,“ sagði Sigurður.
Our Climate Future er á vegum Íslandsstofu, Grænvangs og sendiráðs Íslands í Brussel. Fjöldi íslenskra og erlendra sérfræðinga tóku þátt í umræðum á deginum en íslensk þekking í jarðvarma var í forgrunni og hvernig sú þekking geti nýst í Evrópu og sérstaklega hjá Evrópusambandinu.
Our Climate Future er árlegur viðburður sem Íslandsstofa og Grænvangur standa fyrir í samstarfi við sendiráð Íslands í gestgjafalandinu.