Í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow 2021 býður Breska sendiráðið á Íslandi í samstarfi við Bresk íslenska viðskiptaráðið, Reykjavíkurborg, Grænvang, Samtök iðnaðarins og Festu – miðstöð um sjálfbærni til viðburðarins: Kapphlaup að kolefnishlutleysi.
Boðið verður upp á ólík erindi sem snúa að því hvernig fyrirtæki geta auðveldlega unnið að því að ná fram kolefnishlutleysi í rekstri.
Skráning fer fram á vef SI, hér.
Dagskrá:
- Opnunarávarp
undefined - Loftslagsvegvísir atvinnulífsins – Næstu skref að núllinu
undefined - The Together for Our Planet Business Climate Leaders’ Campaign
undefined - Styrkjum forskotið
undefined
15:00 – hlé og léttar veitingar
- Roadmap to net zero carbon in line with Iceland commitment to 2040 – things to think about
undefined - Byggingariðnaður og loftlagsmarkmið
undefined - Reykjavík og áratugur aðgerða
undefined - Samantekt og lokaorð
undefined
Móttaka í boði Breska sendiráðsins á Íslandi
Fundarstjóri: Sigríður Mogensen frá Samtökum iðnaðarins
Kapphlaup að kolefnishlutleysi (e. Race to Zero) – er alþjóðlegt átak á vegum meðal annars Sameinuðu þjóðanna. Markmið þess er að styðja fyrirtæki, borgir, fjárfesta og aðra til þess að tryggja sjálfbæra framtíð og fylkja liði til að ná fram samræmdum markmiðum um kolefnishlutleysi.
- Öll velkomin – boðið verður upp á léttar veitingar og móttöku að viðburði loknum.
- Viðburðurinn verður einnig aðgengilegur í beinu streymi
- Fundurinn fer fram í salnum Háteigur á Grand hótel. Grand hótel er Svansvottað hótel.
- Allt umfang fundarins hefur verið kolefnisjafnað og rúmlega það (net positive) í gegnum UN Climate Neutral Now.
Viðburðurinn er hluti af fundaröð sem miðar að því að tryggja að þú og þitt fyrirtæki getið verið með puttann á púlsinum í gegnum hnitmiðaða og praktíska upplýsingamiðlun tengda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í Glasgow 1-12 nóvember.
Ekki missa af eftirfarandi viðburðum. Þeir verða báðir í opnu streymi og opnir öllum.
- 19. nóvember kl. 09:00 – 12:00. „Framtíðarsýn og næstu skref“ – Loftslagsfundur Reykjavíkurborgar og Festu.
undefined - 24. nóvember kl. 9-11. „Eru viðskiptatækifæri í kolefnishlutleysi?“ – Sjálfbærnidagur EY og Samtaka atvinnulífsins .
undefined