Hoppa yfir valmynd

Á myndinni hér að ofan eru Friðrik krónprins, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Jeppe Kofod, utanríkisráðherra að prófa sýninguna og líkaði vel. Undir traustri handleiðslu Eggert Benedikts Guðmundssonar, forstöðumanns sýningarinnar, sem fylgdi þeim um sýningarsvæðið. 

Krónprins Dana kynnti sér Græna framtíð 

Friðrik krónprins Dana heimsótti í gær margmiðlunarsýninguna Græna framtíð. Sýningin fjallar um framlag Íslands til loftslags- og orkmála. Hún gefur yfirlit yfir sögu síðustu aldar, markmið landsins til næstu áratuga og þær grænu lausnir sem í boði eru til að draga úr losun innanlands sem utan.

Krónprinsinn lét afar vel af sýningunni og taldi hana gagnlegt innlegg í samtal þjóðanna tveggja um samstarf á sviði loftslagsmála.

Með í för krónprinsins voru meðal annars Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, utanríkisráðherrar beggja landa og fulltrúar úr dönsku og íslensku viðskiptalífi. Þeir tóku þátt í fundi þar sem fjölmörg viðskiptatækifæri Íslands og Danmerkur á sviði grænna lausna voru reifuð. Ríkur vilji kom fram á fundinum um samvinnu landanna sem eru þó um margt ólík þegar kemur að orkumálum.

Ljóst er að með nýsköpun, samvinnu ríkja og nýjum grænum lausnum verður hægt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á alþjóðavísu.

Græn framtíð er starfrækt af Grænvangi og Íslandsstofu og er innan veggja nýrrar skrifstofu Íslandsstofu og Grænvangs í Vatnsmýri.

 

Aðrar fréttir

card thumbnail
Nýárspistill Grænvangs 2024

Það má segja að árið 2024 hafi verið sérstaklega ánægjulegt fyrir Grænvang en á árinu fagnaði v...

1. janúar 2025