Atvinnulífið á stærstu loftslagsráðstefnu í heimi
Grænvangur býður til kynningarfundar um sendinefnd atvinnulífsins á COP31, fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi klukkan 9.00 til 10.00. Fundurinn verður fjarfundur.
Aðildarríkjafundur og ráðstefna loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP) er stærsti árlegi viðburður heims í loftslagsmálum. Þetta er lykilviðburður þar sem stefna, regluumhverfi og tækifæri í loftslagsmálum mótast á alþjóðavísu. Á COP koma saman stjórnvöld og lykilhagsmunaaðilar frá nær öllum ríkjum heims, sem gerir ráðstefnuna að einstökum vettvangi fyrir stefnumótun, samtal og samstarf yfir landamæri.
Undanfarin ár hefur Ísland sent sendinefnd atvinnulífsins á COP samhliða opinberri samninganefnd Íslands. Hlutverk sendinefndarinnar er að varpa ljósi á framlag Íslands í loftslagsmálum, kynna íslenskar lausnir og byggja upp þekkingu og tengsl sem nýtast hér heima.
COP31 fer fram í Antalya í Tyrklandi og það stefnir í öfluga og vel sótta ráðstefnu í ár. Á kynningarfundinum verður farið yfir stöðuna og fyrirkomulag þátttöku atvinnulífsins, auk þess sem leitast verður við að svara lykilspurningunni: á þitt fyrirtæki erindi á COP31.
Grænvangur leiðir sendinefnd atvinnulífsins í samstarfi við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Sendinefndin fer út undir merkjum Green by Iceland.
Við hvetjum stjórnendur og lykilaðila til að nýta þetta tækifæri til að meta hvort þátttaka á COP31 geti skapað raunverulegt virði fyrir fyrirtækið og styrkt samkeppnisstöðu þess til framtíðar.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 30. apríl nk. klukkan 9.00 til 10.00. Fundurinn verður fjarfundur en hlekkur á fundinn verður sendur þátttakendum í kjölfar skráningar.



























































