Ársfundur Grænvangs fer fram 5.apríl kl.14-16 á Grand Hótel (Háteig)
Samstíga á árangursríkri loftslagsvegferð - þáttur atvinnulífsins í orkuskiptum Íslands
Ársfundur Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir, verður haldinn þriðjudaginn 5. apríl kl. 14-16 á Grand Hótel Reykjavík (Háteigur).
Árangri í loftslagsmálum verður einungis náð með samhentu átaki samfélagsins í heild, þ.e. samvinnu atvinnulífs, stjórnvalda og almennings. Með samvinnu má tryggja að markmiðum verði náð og samhliða stuðlað að aukinni samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamörkuðum til lengri tíma litið.
Hér má nálgast streymi viðburðarins:
DAGSKRÁ
Opnunarávarp Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-,orku- og loftslagsráðherra
Ávarp Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI og stjórnarformaður Grænvangs
Hvernig verður kolefnishlutlaust Ísland? Pallborðsumræður
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Kristín Linda Árnadóttir, Landsvirkjun
- Steinunn Dögg Steinsen, Norðurál
- Tómas Már Sigurðsson, HS Orka
Forskot Íslands í átt að jarðefnaeldsneytisleysi. Pallborðsumræður
- Berglind Rán Ólafsdóttir, ON
- Bogi Nils Bogason, Icelandair
- Halla Hrund Logadóttir, Orkustofnun
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, SFS
Ávarp Birta Kristín Helgadóttir, forstöðumaður Grænvangs
Lokaorð fundastjóra Sigríður Mogensen