Ísland 2040 - Ný hugsun í breyttum heimi
Á ársfundi Grænvangs horfum við til 2040 - sjáum fyrir okkur áfangastaðinn kolefnishlutlaust Ísland og hvaða áhrif það mun hafa á samfélag, umhverfi og atvinnulíf.
Sérstakur gestur verður Finn Mortensen, framkvæmdastjóri State of Green í Danmörku. Hann leggur línurnar að fundinum með erindi um hvernig stjórnvöld og atvinnulíf hafa mótað sýn um kolefnishlutlausa Danmörk og lykillausnir. State of Green hefur verið leiðandi afl í að vekja athygli á framlagi Danmerkur í loftslagsmálum og tækifærum þar í landi og er því mikilli visku að miðla þaðan.
Leiðtogar í íslensku atvinnulífi taka þátt í pallborðsumræðum, ræða tækifærin í kolefnishlutleysi og hvernig við nálgumst nýja heimsmynd.
Hvetjum öll til þess að skrá sig og taka þátt í samtalinu í Grósku þann 21. mars kl 13.
DAGSKRÁ
Opnunarávarp forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir
Opnunarávarp formanns Grænvangs, Sigurður Hannesson, Samtökum iðnaðarins
Að horfa fram á veginn - reynsla Danmerkur, Finn Mortensen, framkvæmdastjóri State of Green í Danmörku.
Tækifærin í kolefnishlutlausum heimi
- Álfheiður Ágústsdóttir, Elkem á Íslandi
- Benedikt Gíslason, Arion banki
- Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra
- Kristín Linda Árnadóttir, Landsvirkjun
- Þór Sigfússon, Reykjanesklasinn
Ný hugsun - ný nálgun?
- Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, Icelandair
- Maríanna Magnúsdóttir, Landsnet
- Reynir Sævarsson, EFLA
- Sveinn Margeirsson, Brim
Ávarp frá umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson
Fundarstjóri, Nótt Thorberg, Grænvangi